Um verkefnið
Við heitum Helga Björg og Jóhanna Sól, við erum í 10. bekk í Laugalækjarskóla. Þessi síða er afurð af lokaverkefni okkar sem við erum búnar að vinna að í þó nokkurn tíma. Verkefnið er um ferðamenn hér á landi, þar sem þeim hefur fjölgað mikið hér á seinustu árum. Rannsóknarspurningin okkar er: Hver er besta leiðin til að viðhalda helstu ferðamannastöðum á Íslandi ?
Við teljum að besta leiðin til að viðhalda þessum stöðum sé náttúrupassi. Ragnheiður Elín Árnadóttir fyrrverandi iðnaðar- og viðskipta ráðherra kom með kom með tillögur af náttúrupassanum á þingi í kringum árið 2014. Þetta mál hefur verið mjög umdeilt og ekki eru allir sammála um þessa hugmynd, enda hefur málið ekki verið samþykkt.
Við ákváðum þó að halda áfram með þessa hugmynd þar sem okkur fannst hún ekki alslæm.
Á þessari síðu finnur þú allar upplýsingar um passann sem við hönnuðum út frá okkar hugmyndum.