Við lögðum fram könnun á netinu um ferðamannastrauminn á Íslandi. Könnunin var gerð í Google Docs og við deildum henni á Facebook. Við fengum heldur góð viðbrögð og alls tóku 550 manns þátt. Í könnuninni voru spurðar allskyns spurningar um ferðamenn á Íslandi og náttúrupassann. Niðurstöður má sjá á myndunum hér fyrir neðan.
Alls 44% eða 242 manns af þeim 550 sem tóku þátt fannst ferðamannastraumurinn á Íslandi allt í lagi fyrir landið og 16,7% eða 92 manns fannst hann góður fyrir landið. 16,9% eða 93 manns voru alveg sama um ferðamannastrauminn á Íslandi. Allt að 74 manns eða 13,5% af þeim sem tóku könnunina fannst ferðamannastraumurinn ömurlegur.
Okkur, höfundum síðunnar, finnst ferðamannastraumurinn á Íslandi allt í lagi, hann hefur bæði kosti og galla. Hann gefur góðan ágóða og skapar atvinnu fyrir fjölda manns en hefur hins vegar ekki góð áhrif á náttúru Íslands. Þegar ferðamenn koma til landsins í svona stórum skömmtum, líkt og hann gerir þegar þessi vefsíða er gerð, þá er aukið álag á náttúruna sem að hún var vægast sagt ekki tilbúin fyrir.
80,9% af þeim sem tóku könnunina eða 445 manns voru á þeirri skoðun að ferðamannastraumurinn væri ekki jákvæður fyrir náttúru Íslands. 6,2% eða 34 manns segja að straumurinn hafi jákvæð áhrif á náttúruna á Íslandi.
Við vitum því miður ekki hvaða rök þessi 6,2% styðjast við en við, höfundar vefsíðunnar, erum á þeirri skoðun að ferðamannastraumurinn sé ekki jákvæður fyrir náttúruna eins og fyrr segir. Þegar við ferðumst um landið höfum við séð ferðamannastaði sífellt vera að hrynja niður vegna álags frá ferðamönnum
234 manns eða 42,5% af þeim sem tóku könnunina voru sammála okkur höfundum síðunnar að náttúrupassinn væri góð hugmynd til að fjármagna framkvæmdir á helstu ferðamannastöðum Íslands. 34,2% af þeim sem að tóku könnunina eða 188 manns vissu ekki hvað náttúrupassinn væri. Þetta kom okkur höfundunum á óvart þar sem að náttúrupassinn var logandi umræðuefni fyrir um tveim árum. 93 manneskjum eða 16,9% af þeim sem að tóku könnunina voru mótfallnir því að náttúrupassinn væri góð leið til að fjármagna framkvæmdir á helstu ferðamannastöðum Íslands.
Þegar heildina er á litið er meiri hluti þeirra sem tók þessa könnun sammála því að það þurfi að taka til handanna í þessum málum. Vinsælustu ferðamannastaðirnir á Íslandi eru ekki í góðri stöðu í dag, þeir eru á niðurleið. Það er augljóst að eitthvað þurfi að gera til að viðhalda náttúru Íslands. Okkur höfundunum og 42,5% af þeim sem tóku skoðunarkönnunina finnst náttúrupassinn vera góð hugmynd til að fjármagna framkvæmdir á helstu ferðamannastöðum Íslands en hversu langt hugmyndin gengur vitum við ekki.