Um náttúrupassann
Aukinn ferðamannastraumur getur verið mjög slæmur fyrir náttúruna. Víða eru náttúruperlur Íslands í mjög slæmu ástandi vegna umgangs ferðamanna. Lengi hefur verið rætt um náttúrupassann til að kosta uppbyggingu og viðhald ferðamannastaða á Íslandi, kosta malbikun á vegum víðsvegar um Ísland, gera við brýr, gera ferðamannastaði meira spennandi án þess þó að gera þá ónáttúrulega o.s.fv. Með þessum framkvæmdum tryggjum við öryggi ferðamanna, bæði íslenskra og erlendra, til dæmis heyrum við oft af umferðarslysum sem orsakast af lélegum vegum. Með fjárhagi náttúrupassans látum við einnig ferðamannastaði verða meira augnkonfekt en þeir eru nú þegar.
Mörgum Íslendingum finnst þó ókosturinn við náttúrupassann vera sá að við þyrftum að borga fyrir það að sjá náttúruna í landinu sem að við búum í. Samt eru sumir Íslendingar alltaf að kvarta undan því hvað helstu ferðamannastaðirnir eru orðnir lúnir en eru samt ekki tilbúnir til að borga fyrir náttúrupassann. Ef að við viljum ekki sjá náttúruna okkar eyðileggjast þá þurfum við að grípa til ráða.